01 July 2007

Je m'appelle Lisa!

Já þetta er svo sannarlega ævitýri hérna hjá mér! Veit ekki alveg hvar ég á að byrja! Síðustu vikur er búnar að vera æðislegar! Sigga er búin að koma til mín og var það sko awesome time;) , er búin að fara á flottustu skemmtistaði sem ég hef nokkurn tíman farið á, búin að lenda í mótmælagöngu læknastúdenta, fara upp í La Tour Eiffel, Pantheon, fara til Versala og fl. Fête de la Musique átt sér stað hérna um daginn og var þá live tónlist á hverju einasta horni borgarinnar. Er einnig búin að kynnast einni franskri stelpu sem að heitir Samia og er bara sú ljúfasta. Svo kemur hún Björg elskan til mín í lok júlí og kannski Óskar líka, svo að það er margt búið að ske og margt framundan!

Byrja kannski bara á því þegar hún Sigga var hjá mér! Jebbs hún kom á fimmtudegi svo að við ákváðum að skoða eins mikið og við gátum af borginni. Röltum um Louvre, Champs-Elysées og Sigurbogann, fórum upp í Effleturninn og margt fleira. Svo ákváðum við að skella okkur á eitt gott djamm!!! Já þetta var örugglega eitt það svaklegasta djammi sem ég hef farið á! Byrjuðum á því að fara UNDER-DRESSED á flottan dining-stað :/ ..... svo að við stoppuðum bara stutt, vorum ekki alveg að fíla okkur, skiljanlega ;) Svo lá leiðin inn á klassískan PUB og vorum við ekki lengi að sturta niður langþráðum bjór(um)! Það leið ekki á löngu þar til að einn Svíi spottaði okkur! Það er eins og það standi utan á okkur að við erum Skandinavar! Held nú að það séu þessir ljósu lokkar sem að gera útslagið í því;) En þetta voru bara hinir ágætustu gaurar. Svo seinna um kvöldið að þá slógust tveir Kanar í hópinn. Og voru þeir sko ekkert að spara peningana, svo að það var aldrei, og þá meina ég aldrei tómt glas í höndum okkar. Og við bara brostum okkar blíðasta og vorum sætar :D Svo um 5 leyitð fór að síga á seinnihluta kvöldsins að við héldum!!! En nei viti menn þá var þetta kvöld aðeins að byrja! Því að næst tók við staður þar sem að djamm og dans var til klukkan 10 um morguninn! En þetta hentaði okkur bara ágætlega þar sem að Metró var farinn að ganga aftur svo að skutluðum okkur upp í næsta Metró og fórum heim að SOFA!


En já kannski eruð þið að velta titlinum á færslunni fyrir ykkur!? En eins og hann gefur til kynna að þá heiti ég Lisa hér París! Hildur er bara allt of erfitt fyrir þessi grey :/ En ég kann bara nokkuð vel við mig sem Lisa svo að það er aldrei að vita nema að ég hafi bara samband við þjóðskránna eða nafnanefnd eða hva sem þeir heita sem að breyta nöfnum og bara skipti um nafn ;) hehe...

Pantheon. Fór í Pantheon með tveim bekkjarsystkinum í sl. viku og skoðuðum það hátt og lágt! Fórum í kjallarnann þar sem að fjöldinn allur af frægu fólki er grafið niður. Kannaðist við nokkur nöfn þarna svo sem Victor Hugo og Marie Curie en það var svo sem allt og sumt en hva með það. Auk þess þar sem að það er ógeðsleg lykt þarna niðri að þá var ég ekki lengi að koma mér þaðan. Svo fórum við upp í hvelfinguna og fengum bara þetta fína útstýni yfir borgina! En á leiðinni út úr Pantheon að þá þrammaði fjöldinn allur af ungum og myndarlegum læknanemum í hvítu sloppunum sínum að mótmæla lélegum launum eða eitthvað svoleiðis! Þvílíkur hávaði og læti í þeim fór ekki fram hjá neinum og hva þá bál sem að þau kveiktu í á miðri umferðagötu!Enda eru Frakkar þekktir fyrir að vera miklir uppreisnarseggir ;) Löggimann, slökkvuliðið og auðvita SWAT team-ið mætu á svæðið brostu bara sínu blíðasta og gerðu ekki neitt! Voru þarna bara til sýnis!


Svo er það flottasti skemmtistaður sem að ég hef á ævi minni farið á og efa ég að nokkur annar staður eigi eftir að toppa! Hann er undir Pont Alexandre III þ.e.a.s. hann er undir einni af brúnnum/brúunum (ekki alveg viss hvort að ég sé að skrifa BRÚ rétt! en þið vitið hva ég meina) yfir Signu. Hann er einu orði sagt MAGNAÐUR, get ekki sagt neitt annað! Þið verðið bara að koma hingað sjálf og sjá! Og heitir auðvita Showcase. Ég fór að þennan stað með Samiu og get ég alveg bókað að ég er pott þétt að fara þangað aftur :D

Fête de la Musique var líka æði! Þá voru hljómsveitir að spila eins og þeim er til lista lagt út um alla borg og var borgin stöppuð af fólki! Þetta svipaði svona til 17. júní heima en samt miklu betra :) Fullt af sætum og svona passlega skítugum hljómsveitastrákum út um allt :D Ekki slæmt ha ;)

Versalir og Effelturninn eru svo bara svona hlutir sem að maður “verður að gera” þegar maður er svona lengi hérna you know ;) en auðvita mjög gaman!


En það sem að ég hlakka mest til núna er það þegar hún Björg mín kemur hingað til mín! Þá verður sko þrammað um borgina endilanga og allt gert. Allt frá þessu típíska túrista-stuffi til skemmtistaðarins Showcase!!!!




5 comments:

Sukkab said...

Usss, vildi að ég hefði verið með ykkur! Hlakka ekkert smá mikið að fá ykkur heim, það er svo einmanalegt án ykkar:(
Hafðu það bara ótrúlega gaman og njóttu út í ystu æsar!
xxxx
"Linda"

Anonymous said...

hæ sæta mín...
já veistu harpa mín það hefði ekkert verið verra að hafa þig þarna með okkur! meira ruglið!!!
lisa min...
takk endalaust fyrir mig sætust... þetta var æði;)
þú verður svo bara á planet hollywood með vinum okkar það sem eftir er af kvöldunum þínum þarna í parís;)

Anonymous said...

Jahú ég get loksins kommentað! ;) ohh hvað ég er sátt með að sjá færslu hérna! næ ekkert að rekast á þig á msn, hvað þá á skype!! ;/ vinnum í því... en ég sakna þín og ég vildi að ég væri að koma út, væri mega til í sjá þessa staði alla og upplifa parís! en bestu kveðjur frá íslandi, luv luv luv...

BJÖRG said...

ohhh hvað þetta hljómar vel!!! Þetta verður bara snilld! Hlakka til að koma og fara með þér á Showcase og rölta um bæinn!
Tíminn líður svo hratt, þú búin að vera úti í 5 vikur og ég kem svo eftir 4... gaman gaman! Sakna þín sæta :*

Anonymous said...

Hæ sæta! Ekkert smá gaman að lesa bloggið þitt, greinilega mikið um að vera hjá þér. Haltu áfram að skemmta þér vel. Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim ;)
kveðja
Maja