13 June 2007

Síðustu dagar & næstu dagar!


Þá er ég að fá minn fyrsta gest!! Jebbs hún Sigga, Sigríður Harðardóttir er að koma til mín á morgun! VEI ;) Alltaf gaman að fá bestu vinkonu sína í heimsókn!
En þar sem að hún hefur aldrei komið hingað til Parísar að þá eigum við eftir að gera alveg heilan helling hérna, líka sérstaklega þar sem að ég á enn eftir að skoða fullt! Svo að það verður nóg að gera hjá okkur!


Annars eru síðustu dagar búnir að vera mjög fínir! Búin að labba mikið um borgina og skoða fleiri merkilega staði. Fór á sunnudaginn í Parc Floral de Paris. Þar var margt um manninn og lág maður bara í grasinu sólaði sig, hlustaði á live jazz tónlist og spjallaði. Ekki slæmt ha ;)



Núna er ég búin að vera í skólanum í tæpar tvær vikur! ... Vá hva tíminn líður!! Hann gengur svona bara.... já hann gengur ;) Einhvern veginn heldur maður að þetta sé auðveldara en þetta er :/ ......

Á bientôt

4 comments:

BJÖRG said...

Gaman að fá nýja fæslu og gaman að Sigga sé að koma! Bið að heilsa og hafið það gott! Verð svo að fara að heyra í þér varðandi Norhu Jones... Knús

BJÖRG said...

Hæ sorry að ég kom ekki aftur inná msn :/
En við verðum að hittast aftur og spjalla á skype!
En hérna ég átti að segja þér frá Heru að hún getur ekki commentað og örugglega ekki fleirri því þú ert með þetta stillt þannig að bara fólk með google account geta commentað hjá þér! Þú verður að breyta því ;)
En sendu mér sms þegar þú getur hitt mig á msn...
:*

Anonymous said...

BLOGGAÐU! ;) miss u

Anonymous said...

hvenær fær maður að heyra frá þér Hildur? :)